Til baka
Cover

TVÍK

2024
tvik.is

TVÍK er nýstárlegur kennslu vettvangur sem kennir íslensku. Við bjuggum til sérsniðið vefumsjónarkerfi fyrir TVÍK svo þau geti auðveldlega búið til og uppfært námsefni.

CMS
Vef-app

Verkefnið

TVÍK er stafrænn kennslu vettvangur sem kennir íslensku frá sjónarhorni þeirra sem hafa lært málið sem fullorðnir og náð góðum tökum á því. TVÍK býður upp á þriggja mánaða námskeið þar sem nemendur læra í gegnum daglegar aðstæður, svo sem að fara í veislu eða aka um landið. Þannig þróast kunnátta þeirra smám saman frá einföldum setningum yfir í að geta tekið þátt í eðlilegum samræðum. TVÍK hlaut Sprota frá Tækniþróunarsjóði Rannís, sem leiddi til samstarfs við okkur. Megináherslan var lögð á að þróa öflugt vefumsjónarkerfi, sérstaklega hannað fyrir tungumálakennslu. Kerfið gerir TVÍK kleift að vinna með námsefnið sjálfstætt án tæknilegrar aðstoðar. Þau geta búið til ýmsar gerðir námsefnis - allt frá orðaforðaæfingum til samtalstengdra verkefna - og uppfært efnið eftir þörfum, byggt á endurgjöf nemenda. Þessi sveigjanleiki gerir þeim kleift að bæta stöðugt við nýju efni og þróa kennsluna áfram.
TVÍK vefumsjónarkerfi
Það er ótrúlega gott að vinna með ykkur. Þið eruð algjörir snillingar í UX-inu og öllu saman. Þið náðuð strax hvað ég var að fara þegar ég talaði við ykkur. Það er svo gaman að sjá hversu hratt þið vinnið og gerið allt svo flott í leiðinni. Ég kann svo mikið að meta hvernig þetta er allt uppsett og hversu mikil vinna hefur farið í smáatriðin. Þetta er rosalega vel gert hjá ykkur. Takk kærlega fyrir það.
Gamithra Marga
Founder of TVÍK

Ertu með áskorun?

Sá sem ekki vogar, vinnur ekki.

Appetite ehf. 2024. Allur réttur áskilinn.