Til baka
Cover

Realtime er tól fyrir að innleiða rauntíma-virkni í þinn hugbúnað. Rauntíma virkni hefur aldrei verið eins einföld.

Web app
npm package
Landing page
API
Realtime collaboration
Design

Verkefnið

Þegar við hófum Slate verkefnið, áttuðum við okkur á því að við vildum smíða þann hugbúnað með innbyggðum rauntíma samvinnu eiginleikum svo fólk gæti unnið saman í rauntíma. Við fundum ekki neina góða vöru á markaði sem mætti okkar þörfum og því var tekin ákvörðun um að smíða þá lausn sjálf. Við ákváðum frá upphafi að smíða Realtime sem sjálfstæða vöru svo að afurð hennar gæti nýst öðrum en einungis Slate.
Project image
Project image

Áskoranir

Við komumst fljótt að því að rauntíma hugbúnaðarlausnum fylgja ákveðin flækjustig eins og skölun, úrskurði á gagnabreytingum, rauntíma algrím og fleira. Sem dæmi tók það Figma um tvö ár að endurskrifa sinn hugbúnað til að innihalda rauntímavirkni vegna flækjustigs.
Project image
Project image
Project image

Afurðin

Afurðin ber nafnið Realtime og er í formi hugbúnaðarpakkans @inrealtime/react, veftólsins Realtime sem leyfir notendum að greiða fyrir lausnina og sjá notkunar-tölfræði, skjölunarsíðu Realtime og að lokum þjónustuna sjálfa sem byggði á skýjalausnum Cloudflare Durable Objects og inniheldur rauntíma-vélina sjálfa. Við erum verulega stollt af þessari afurð þar sem hún er talsvert öflugri og einfaldari í notkun en allar aðrar lausnir sem fyrirfinnast á sama markaði.

Viltu vinna með okkur?

Tengingar
Við erum reynslumiklir forritarar, staðsett á Íslandi, og við elskum að byggja hágæða hluti. Hvort sem það er sérhæfður hugbúnaður, sérsniðnar vefsíður, öpp, vefþjónustur, rekstur, hýsing eða ráðgjöf; Við gerum þetta allt.
/
Appetite ehf. 2024. Allur réttur áskilinn.