Til baka
Cover

Veftól Slate

app.slate.mx

Veftólið fyrir Slate.mx, sem straumlínulagar og hámarkar hagkvæmni við rekstur fyrirtækja með því að veita fólki sem er ekki tæknimenntað meira aðgengi að sínu hugbúnaðarumhverfi.

Web app
API
Realtime
Design

Verkefnið

Í ársbyrjun 2020 hófust smíði á umfangsmiklu hugbúnaðarkerfi sem myndi koma til með að gjörbreyta hvernig forritarar smíða hugbúnaðarkerfi. Eftir fjölmargar ítranir, nokkrar stefnubreytingar og margra ára vinnu var afurðin Slate gefin út.

Lyfturæðan

Slate er tól sem er hannað til að straumlínulaga og hámarka hagkvæmni við rekstur fyrirtækja með því að veita fólki sem er ekki tæknimenntað meira aðgengi að sínu hugbúnaðarumhverfi. Slate tekur við atburðum sem eiga sér stað innan hugbúnaðar umhverfi fyrirtækja og breytir þeim í aðgerðir. Atburðir geta verið allt frá “sala átti sér stað” eða “reikningur greiddur” til “staðfesting á móttöku póstsendingar” eða “nýr notandi stofnaður”. Slate býður notendum að framkvæma fjölbreyttar aðgerðir við móttöku atburða, eins og að senda sjálfvirk svör frá þjónustufulltrúum eða uppfæra birgðastöðu í rauntíma. Með notendavænu viðmóti leyfir Slate notendum að ráða flækjustigi aðgerða og jafnvel keyra aðgerðir í framtíðinni. Með stuðningi við umhverfi eins og Slack, Postmark, Twilio, OpenAI og sérsniðnar vefþjónustur, uppfyllir Slate ólíkar kröfur notenda. Slate brúar bilið á milli tæknilegrar virkni og hagnýtra viðskiptaferla og eykur þar með afkastagetu, sköpunargleði og viðbragðstíma í rekstri fyrirtækja.
Project image

Áskoranir

Við höfum unnið okkur í gegnum ótal margar áskoranir við uppbyggingu Slate. Þá má nefna rauntíma-eiginleika (Realtime), hönnun og notendaupplifun viðmótsins, tengingar við utanaðkomandi þjónustur, skölun, skjölun, gagnagrunns hönnunar-viðmót, greiðsluferli og margt margt fleira.
Project image
Project image
Project image
Project image
Project image
Project image
Project image
Project image
Project image
Project image
Project image
Project image
Project image
Project image

Afurðin

Eftir fjármögnun frá Aranja og ótal margar klukkustundir af forritun getum við sagt að við erum virkilega stollt af afurðinni. Slate er gríðarlega öflugt veftól og við erum sannfærðir um að varan mun koma til með að efla og hjálpa fyrirtækjum um allan heim við þróun og notkun hugbúnaðarkerfa.

Viltu vinna með okkur?

Tengingar
Við erum reynslumiklir forritarar, staðsett á Íslandi, og við elskum að byggja hágæða hluti. Hvort sem það er sérhæfður hugbúnaður, sérsniðnar vefsíður, öpp, vefþjónustur, rekstur, hýsing eða ráðgjöf; Við gerum þetta allt.
/
Appetite ehf. 2024. Allur réttur áskilinn.